7/8 Recycled Active Legging
MIÐLUNGS TIL MIKIL RAKADRÆGNI
Flæði: 15ml = 2-3 túrtappar eða 3 teskeiðar
Hentar: Til að nota án annarra varna á þungum blæðingum, við mikilli útferð eða áreynslu þvagleka.
Tilfinning: Teygjanlegar, þéttar og veita stuðning
Þín áhrif: Hættu að nota dömubindi, innlegg og tappa - hafðu jákvæð áhrif á umverfið fyrir þig og alla aðra.
- Falin lekavörn með góðri rakadrægni í klofbótinni
- Endurunnið efni í ytra birði.
- Súper þægilegar
Ekki láta blæðingarnar (eða þvagleka) koma í veg fyrir líkamsræktina.
Þessar íþróttaleggings eru með innbyggðu rakadrægu og lekaþolnu stykki sem sést ekki utan frá og hafa slétt og fallegt "fit". Sama tækni og í Modibodi nærbuxunum sem við elskum öll.
Buxurnar eru gerðar úr umhverfisvænu endurunnu efni með innbyggðum stuðningi og símavasa. Nú er kominn tími til að gleyma ertandi dömubindum og pirrandi túrtöppum á meðan þú æfir.