Umhverfisvæni markaðurinn verður haldinn í Gym & Tonic salnum á Kex Hostel við Skúlagötu sunnudaginn 18. ágúst klukkan 11-17. Modibodi verður þar ásamt rjómanum af umhverfisvænu verslunum landsins. Þú getur komið þangað og fengið helstu nauðsynjavörur fyrir heimili, heilsu og líkama. Bambustannburstar, tannkremstöflur, stál sogrör, taudömubindi, eiturefnalaus leikföng, túrnærbuxur og tíðabikarar er á meðal þess sem hægt er að versla á markaðnum.
Ef þú ert ein af þeim sem ert búin að vera að bíða eftir tækifæri til að skoða snið og stærðir þá er þetta kjörið tækifæri. Við verðum líka með tíðabikarana til sýnis en þeir eru í alls konar stærðum og gerðum.
- Enjo - Umhverfisvæn þrif
- Græn viska - Umhverfisvænar og vegan vörur
- Hrísla - Hágæða leikföng úr náttúrulegum efnivið
- Jógubúð - Fjölnota taubindi, hreinsiskífur og barnaföt sem vaxa með barninu
- Lauuf - Vefverslun með áherslu á sérvaldar gæðavörur
- mena - Vandað og vistvænna fyrir heimilið og þig
- Mjallhvít - Barna- og tauvörur
- Modibodi - Túrnærbuxur og tíðabikarar
- Rúnbrá - Ungbarna hringlur, hitapúðar og fleira heimagert fyrir alla fjölskylduna
- Tropic.is - Umhverfisvænni lífstíll
- Una Stígsdóttir - Einstakir, handgerðir skartgripir